29.júlí 2007
Júní fór vel fram, byrjaði á sjómannadagshelginni sem var hátíðleg eins og alltaf! Þriðju helgina í júní skelltum við mægður okkur svo til Köben í afmælisferð, móðir varð 45 ára þann 15.júní sl. Það var gleði gleði! Ég komst í lífshættu í fallturninum, hef aldrei á ævi minni verið jafn hrædd. Skelfingarsvipurinn, lofthræðslan, óhugreystandi Maja og óþægistilfinningin var eitthvað sem ég gleymi seint.

Ath. að svipurinn á myndinni er örlítið ýktur, hehe. En þó gaman að hafa prufað að fara í 63 metra hæð bundinn í einhvern stól og dóla sér eitthvað þar uppi að bíða eftir því hvenær haldið verður niður, kastast svo alla leið niður og hálfa leið upp aftur. Maginn varð eftir niðri. Annars var þetta prýðis ferð, smá verslað, sleikt sólina, fengið sér öl við Nyhavn og göngutúr um Íslendingaslóðir.
Júli er gleðimánuður! Byrjaði á hörku afmælisteiti hjá Guðmundi á Múlavegnum. Ég, Maja, Sonja og Sigga brugðum okkur í roadtrip til Rvk. city. Ég að keyra og Dj Mariamey mætt aftur

Í Reykjavík hitti ég Vínarbúana, Sabinu, Gerhard, Önnu og Stefan og auðvitað Þórdísi líka :)

Það var yndislegt. LungA stóð fyrir sínu, skemmti mér konunglega bæði föstudags og laugardagskvöld! Í gær fór ég með Mæsu og Kamillu á Borgó og við urðum vitni af bráðskemmtilegum tónleikum Meistara Megasar!

Meistarinn byrjar þegar hann vill og hættir þegar hann vill, kallinn spilaði í tvo tíma og var hress! Tók öll sín bestu lög og ég hélt ég yrði ekki eldri þegar hann tók hið undurfagra lag Tvær Stjörnur, það er eitt af mínum uppáhaldslögum. Ég táraðist, fékk gæsahúð og komst bara í geðshræringu! Lay Low var líka góð, en öll erum við Megas og ekkert jafnast á við hann!
Ekki verður ágúst af verri endanum! Byrjar með verslunarmannahelginni, sem ég er reyndar ekki alveg viss hvar ég ætla að eyða. Helgina eftir það kemur Sarah Jungmayr vinkona mín frá Austurríki í Íslandsheimsókn og svo er það US and A 17.ágúst!! Gleði tímar framundan. Get varla sofið af spenningi!
Vonandi eru gleðitímar framundan hjá ykkur líka, hafið það best!
Enda þetta á einni mynd sem ég tók útí bæ í góða veðrinu áðan!

Birta
Sumariđ er tíminn!
Það er mánuður í ferð okkar mægðna til Köben og ég hlakka mjög til þess! Í dag á hún Sóley Rún afmæli og óska ég henni innilega til hamingju:)
kveð að sinni, bara vildi láta vita af mér.
US and A! I like!
Það eru spennandi tímar framundan! sumarfrí 10.maí, kosninga/eurovision/próflokadjamm um helgina, Þórdís að koma næstu helgi og krakkarnir að fara að útskrifast! helgina eftir það fer ég suður í útskrift til Þórdísar og í fermingu til Veigars! 15.Júní förum við mæðgurnar til Köben og njótum lífsins þar í nokkra daga, einnig ætla ég að draga þær með til Malmö! Nýjasta tilhlökkunarefnið er 10 daga ferð okkar Maju til Baltimore í ágúst! Draumur minn um að líta Bandaríkin augum er að verða að veruleika! Verðum hjá hostsystur Maju í Baltimore og förum svo vonandi til NY og kíkjum þar sem maja bjó þegar hún var skiptinemi 00/01
Þarna er brengluð mynd af okkur systrum, speglamynd(uppáhaldið hennar maju) En hún er tekin í páskafríinu góða og það er það sem gildir:)
Annars hafa síðustu dagar einkennst af lærdómi, nammiáti og lítilli hreyfingu. Dimmisjón var frábært! það var svo gaman að dimmitera, eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert! Þetta mun lengi lifa í minningunni, við fengum líka svo gott veður, hópurinn var góður og allt var æði!
Þarna eru ég og Beta í bílnum með Evu, um morguninn, enn á lífi og hressar.
Sé ykkur fersk um helgina á djamminu;) ekki?
međstjórnandi nme?
Annars gengur lífið sinn vanagang, bara skóli og leiðindi. Reyndar tónleikar á sumardaginn fyrsta og svo verð ég einstæð móðir á fjölskyldubílnum um helgina, en stelpurnar ætla nú að kíkja á mig á laugardaginn svo þetta verður fínt. Gummi er kominn inn í Krabbesholm listalýðháskólann í Skive, með ljósmyndum sem kjörsvið. Svo ég verð aaalein í ágúst mánuði þegar foreldrar mínir og örverpið ætla að yfirgefa mig og skella sér til Mallorca og Guðmundur ætlar að leggja land undir fót og fara til dk. En vonandi verður eitthvað af þessari stelpusólarlandaferð? Það yrði nú gaman.
En nóg að sinni. Munuð bara nme kosningar á föstudaginn og krossið nú við rétt nafn;)
x Birta
12.apríl
Á miðvikudaginn kíktum við ég, Maja og Hrefna til Flensborgar á djammið. Gistum hjá vini Maju sem við kusum að kalla "Dilla" svo hann myndi ekki fatta þegar við töluðum um hann. Það var vægast sagt fyndin ferð. Komum þangað, gistum þrjár ásamt Johonnu í einu herbergi á dínum á gólfinu. Djammið var tæpt, þjóðverjar eru frekar hallærislegir, lögin síðan í fyrra í top 10 og svona. Við fórum snemma heim og svo þegar Dilli kom heim kom svona sumarbúðafílingur í þetta, strákurinn að stelast inní stelpuherbergið, kitlandi okkur og við með hálfgerðan svefngalsa og s.frv. hehe þið getið ímyndað ykkur hvernig þetta var ;) Hann vildi líka endilega fá eina af okkur upp með sér og hlýja sér eins og hann orðaði þetta, en engin okkar fékkst til þess, hehe. Daginn eftir vöknuðum við í brjálaðan brunch með páskakanínum og svona:) Þetta var svona kjánahrollsdjamm, en samt svo gaman.
Fimmtudag og laugardag var stefnan tekin á Sönderborg og Tuborg öl var í uppáhaldi. Ég hitti vini Maju sem eru öll þjóðverjar eiginlega og ég gat talað þýsku sem var gaman.
Við stöllur héldum svo til Flensborgar að versla á laugardeginum ásamt honum "Alla" okkar, srákur sem var voða heitur fyrir Hrefnu. Þar var aðeins verslað en við þurftum að leita vel til að finna eitthvað við okkar hæfi.
Páskadagur var þunnur en um kvöldið fórum við til Beggu frænku Gumma og Hrefnu í páskasteik, það var æðislegt og ég fékk að hitta hann Knút Heiðberg:) Annar í páskum fór bara í að hafa það gott, baka og svona seinasti dagurinn.
Ég hitti einnig herramaninn Jean frá Belgíu sem Maja er að leigja með. Hann skammtaði á diskana, opnaði hurðar, hellti í glösin og svona. Aldrei myndi íslenskum strákum detta það í hug. En eitt kvöldið fannst honum við tala heldur hátt og þegar ég ætlaði að fara að tannbursta mig blasti við mér á skápnum hvítt blað með rauðum stöfum. Mér brá mjög og þetta minnti mig á redruM atriðið í shining, nema þetta var ekki blóð núna. Á miðanum stóð haha. við vorum dálitla stund að átta okkur á því hvað í ósköpunum stæði þarna. Spurðum hann svo að því daginn eftir og þá átti að standa: viljiði hafa lægra, takk fyrir, góða nótt! núna ætla ég alltaf að segja nátthúfa í staðin fyrir góða nótt.
Nú er ég búin að blogga um ferðina góðu:) take care og komist í lærdómsfílinginn aftur eftir páskafríið!
p.s. ýtið á það sem er feitletrað og þið getið séð mynd af miðanum sem við fengum, hehe
24.02.07
Ég hlakka til að fara til Danmerkur og hitta Maju, ég hlakka til að sjá elsku Bob Dylan í Köben. Ég hlakka til þegar ég verð búin með stúdent og get haldið áfram leið minni á vit ævintýranna, farið til útlanda gert ó svo margt. Ég hlakka til að sýna mömmu, pabba, Maju og Kamillu Austurríkið mitt, elsku fallegu Vínarborg, Eisenstadt, Salzburg, alpana og sjá dýru Feneyjar! Ég hlakka til að verða stór, samt ekki of stór bara semi.. ég vil vera forever young eins og segir í laginu.
Mig langar að gera svo margt, verða svo margt, sjá svo margt og upplifa svo margt. Ég vil ferðast út um allt, sjá heiminn eins og hann leggur sig. Það er svo gaman að víkka sjóndeildarhringinn, gaman að fara annað slagið úr bómulnum sem mamma passar svo vel. Stundum sakna ég þess að vera ekki lengur úti og lifa mínu einfalda en samt svo flókna lífi, lífi án skólabóka, án ábyrgðar, án skyldna til eins né neins. En yfirleitt er ég líka svo ánægð að hafa þetta allt hjá mér.
10.02.07
En ég kveð að sinni með nýja ferska bloggsíðu.
Birta
